Hlýjar móttökur í Færeyjum
22. júní 2026
Ljósmyndir: Bjarni Árting Rubeksen og EFI.
Fyrsti dagur opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja.

Lögmaður tekur á móti forseta á Vágar-flugvelli.







„Á milli Íslands og Færeyja hafa lengi legið gagnvegir ... leiðir yfir hafið sem hafa flutt fólk, hugmyndir, þekkingu og vináttu milli landa,“ sagði forseti í skálaræðu sinni í Þórshöfn. Ræðan í heild er aðgengilegt hér á vefnum.
Sjá nánar.
Forsetahjón, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, hófu þriggja daga opinbera heimsókn til Færeyja í gær. Gestgjafar þeirra eru lögmaður Færeyja, Beinir Johannesen, og eiginkona hans, Helena Johannesen. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja náin tengsl Íslands og Færeyja og vinna að frekara samstarfi landanna, meðal annars á sviði sjávarútvegs, orkumála, nýsköpunar og menningarmála.
Lögmannshjón tóku á móti forsetahjónum og fylgdarliði á Vágar-flugvelli laust eftir klukkan 14. Þaðan var haldið til Tinganes í Þórshöfn þar sem færeyska landstjórnin hefur aðsetur. Forseti átti þar fund með lögmanni. Á meðan heimsóttu Björn Skúlason og Helena Johannesen veitingastaðinn Heima í Þórshöfn sem farið hefur nýjar leiðir í þróun færeyskra matarhefða.
Síðdegis buðu lögmannshjón forsetahjónum og fylgdarliði til móttöku í Tinganesi ásamt ráðherrum færeysku landstjórnarinnar. Þaðan var farið fótgangandi í gegnum Reyn sem er eitt elsta hverfi Þórshafnar. Næsti viðkomustaður var þinghúsið þar sem forseti færeyska þingsins, Johan Dahl, tók á móti gestunum og sagði frá starfsemi þingsins. Í kjölfarið heimsóttu forsetahjón sýningarsal færeyska fyrirtækisins Guðrun & Guðrun en það hefur getið sér gott orð fyrir að flétta saman hefðbundnu handverki og nútímalegri fatahönnun.
Dagskránni á þessum fyrsta degi heimsóknarinnar lauk með hátíðarkvöldverði sem lögmannshjón buðu til á Hotel Føroyar. Forseti og lögmaður fluttu skálaræður og töluðu bæði um dýrmæta vináttu Íslands og Færeyja. Forseti sagði meðal annars:
„Ég dáist sérstaklega að því hvernig Færeyingar hlúa að rótum sínum af alúð og horfa um leið fram á veginn af hugrekki og bjartsýni. Hér virðist ekki vera sama togstreita milli hefða og framfara og víða annars staðar. Þær virðast búa hér hlið við hlið og styrkja hvor aðra. Kannski skilja fámennar eyþjóðir eins og okkar betur en margur annar hve dýrmætt jafnvægið þarna á milli er. Við gerum okkur góða grein fyrir því að við getum ekki tekist á við framtíðina án þess að vita hvaðan við komum. Þetta er að einhverju marki sá lærdómur sem við höfum dregið af náinni sambúð við duttlungafulla náttúruna. Sterkar rætur eru forsenda þess að gróðurinn og mannlífið vaxi og geti tekist á við margháttaðar áskoranir.“
Undir borðum hlýddu gestir á tónlistarflutning færeyskra listamanna, þar á meðal söngkonunnar Eivarar Pálsdóttur, en að borðhaldi loknu var stiginn færeyskur dans. Opinber heimsókn forsetahjóna heldur áfram í dag og liggur leið þeirra og lögmannshjóna meðal annars til Runavíkur og Klaksvíkur.
Fleiri fréttir

19. júní 2026
„Skapandi hugsun er lykillinn að farsælli framtíð“
Forseti flytur hátíðarávarp við útskrift Listaháskóla Íslands
19. júní 2026
„Skapandi hugsun er lykillinn að farsælli framtíð“

19. júní 2026
Opinber heimsókn til Færeyja
Forsetahjón halda til Þórshafnar mánudaginn 22. júní.
19. júní 2026
Opinber heimsókn til Færeyja

18. júní 2026
Kvennatrommusveit á Bessastöðum
Stiklur úr dagbók forseta
18. júní 2026
Kvennatrommusveit á Bessastöðum