Hlýjar móttökur í Finnlandi
7. október 2025
Dagskrá ríkisheimsóknar hefst í Helsinki.






Forsetahjón, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason, hófu tveggja daga ríkisheimsókn til Finnlands í morgun. Gestgjafar þeirra eru forseti Finnlands, Alexander Stubb, og eiginkona hans, Suzanne Innes-Stubb. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja hin góðu tengsl Íslands og Finnlands, meðal annars á sviði viðskipta, varnarmála og orkumála.
Dagskráin hófst kl. 10:00 með formlegri móttökuathöfn framan við forsetahöllina í Helsinki. Lúðrasveit lék þjóðsöngva beggja landa og í kjölfarið voru opinberar sendinefndir kynntar fyrir forsetum og mökum þeirra. Því næst var gengið inn í forsetahöllina. Þar skráðu forseti Íslands og maki nöfn sín í gestabók, auk þess sem veittar voru orður og skipst á gjöfum.
Halla Tómasdóttir og Alexander Stubb áttu í kjölfarið klukkustundarlangan fund í forsetahöllinni en á meðan fóru Björn Skúlason og Suzanne Innes-Stubb, ásamt Ásthildi Jónsdóttur sendiherrafrú, í heimsókn á veitingastaðinn Nolla í Helsinki og þaðan á Ólympíuleikvanginn og á Tahto-íþróttasafnið. Forsetahjón beggja landa þáðu síðan hádegisverð í ráðhúsi Helsinki í boði borgarstjórans, Daniels Sazonov.
Hér á vefnum er úrval ljósmynda frá heimsókn forsetahjóna til Finnlands.
Sjá nánar
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar