Hólmfríður Sigurðardóttir
19. september 2024
Forseti heimsækir skáldið sem orti ljóðið í innsetningarræðu hennar.

Forseti ræðir við Hólmfríði Sigurðardóttur skáldkonu og tekur við árituðu eintaki af bók hennar Dagar sóleyjanna. Ljósmynd: Skrifstofa forseta/Una Sighvatsdóttir




Forseti heimsækir skáldkonuna Hólmfríði Sigurðardóttur, en hún orti ljóðið Leitum sem forseti gerði að lokaorðum sínum í innsetningarræðu við embættistökuna þann 1. ágúst. Hólmfríður starfaði sem sérkennari um árabil en býr nú á hjúkrunarheimilinu Mörk og er 93 ára gömul. Í gegnum tíðina orti hún gjarnan tækifærisljóð sem hún tók loks saman þegar hún var komin á níræðisaldur og gaf út í bókinni Dagar sóleyjanna árið 2015. Forseti heimsótti Hólmfríði til að færa henni þakkir fyrir afnot af ljóðinu í innsetningarræðunni. Um leið færði skáldið forseta áritað eintak af bók sinni. Ljóð Hólmfríðar má lesa hér:
Leitum
Leitum úrræða
látum hendur og orð
fallast í faðma
leitum gleðinnar
í ljóðinu
finnum frelsið
í höndunum
leitum regnbogans
finnum ljósberann
leitum láns
finnum það leika um líf
lands vatns og ljóss.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“