Tvö 100 ára afmæli sama dag
25. apríl 2026
Ljósmyndir: Anton Bjarni, Kormákur Máni Hafsteinsson/Ljósmyndarafélag Íslands og EFÍ.
Forseti fagnar með Ljósmyndarafélaginu og Kvenfélagi Álftaness.

Forseti ásamt kvenfélagskonum af Álftanesi og fleiri gestum.


Á vef Ljósmyndarafélags Íslands má sjá úrval ljósmynda frá afmælishátíð félagsins.
Sjá nánar.
Forseti tók þátt í fjölbreyttum afmælisviðburðum Ljósmyndarafélags Íslands og Kvenfélags Álftaness. Annars vegar sótti hún 100 ára afmælishátíð Ljósmyndarafélagsins á Hilton Nordica hótelinu. Hins vegar tók hún á móti félagskonum í Kvenfélagi Álftaness á Bessastöðum en stofnfundur félagsins var haldinn þar fyrir réttum 100 árum.
Afmælishátíð Ljósmyndarafélagsins samanstóð af margháttuðum viðburðum. Forseti tók þátt í táknrænni myndatöku með hefðbundinni glerplötutækni, klædd upphlut sem langamma hennar átti upphaflega. Kormákur Máni Hafsteinsson, sem hefur sérþekkingu á gömlum ljósmyndaaðferðum, tók myndina á myndavél Sigríðar Zöega. Sigríður var fyrsti kvenkyns atvinnuljósmyndarinn í Reykjavík og einn af stofnendum Ljósmyndarafélagsins. Ljósmyndin er hér neðst á síðunni.
Sjö konur stofnuðu Kvenfélag Bessastaðahrepps, eins og það hét upphaflega, í Bessastaðastofu 25. apríl 1926. Var húsfreyjan á staðnum, Elín Vigfúsdóttir, kjörinn fyrsti formaður. Í tilefni 100 ára afmælisins bauð kvenfélagið Álftnesingum til afmælisveislu í félagsaðstöðu sinni við Lambamýri laust eftir hádegi. Síðdegis tók forseti síðan á móti hópnum á forsetasetrinu. Við það tækifæri þakkaði hún félaginu fyrir ómetanlega þjónustu við nærsamfélagið undanfarna öld og ræddi einnig um það óeigingjarna og dýrmæta mannúðarstarf sem kvenfélög um allt land sinna.

Ljósmyndin sem Kormákur Máni Hafsteinsson tók af forseta í Hörpu á ljósmyndavél Sigríðar Zöega.
Fleiri fréttir

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs

27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.
27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings

25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk
Forseti tekur á móti fulltrúum Barnaheilla.
25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk