Ísland á Expo 2025
29. maí 2025
Forseti tekur þátt í þjóðardegi Íslands í Osaka.










Forseti tekur þátt í þjóðardegi Íslands á Expo 2025 heimssýningunni sem fram fer í Osaka í Japan. Yfirskrift íslenska dagsins Var „Friður og jafnrétti“ og gafst gestum kostur á að kynnast landi og þjóð með fjölbreyttum viðburðum þar sem forseti tók þátt.
Fyrsti viðburður dagsins var samtal forseta við ungt fólk frá Osaka um friðarmál, framtíðaráskoranir og markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni. Umræðustjóri var Yuki Nakane, frá fjölmiðlinum RCC í Hiroshima.
Því næst lá leið forseta í Women’s Pavilion þar sem hún tók þátt í samtali um valdeflingu kvenna og kynjajafnrétti við Sayuri Daimon, blaðakonu og fyrrum ritstjórnarfulltrúa Japan Times. Ragnar Þorvarðarson, forsvarsmaður þátttöku Íslands á heimssýningunni, flutti opnunarávarp og sagði frá þróun jafnréttismála á Íslandi.
Í norræna skálanum, þar sem Ísland er í samstarfi við hin fjögur Norðurlöndin, fór fram bókmenntaviðburður með Rán Flygenring, myndlistarmanni og rithöfundi, og Shohei Akakura þýðanda, um bók Ránar, Vigdís: bókin um fyrsta konuforsetann, sem nýverið kom út á japönsku. Borgarstjóri Reykjavíkur, Heiða Björg Hilmisdóttir, flutti opnunarávarp.
Í lok dags var efnt til hátíðarviðburðar þar sem forseti Íslands og vararáðherra efnahags-, viðskipta- og iðnaðarmála Japans, Yuichiro Koga, ávörpuðu gesti áður en íslenskt tónlistarfólk steig á svið. Það voru þau Ásgeir, JFDR og Gabríel Ólafs sem öll njóta nokkurra vinsælda í Japan.
Gestir heimssýningarinnar voru um 140 þúsund þennan dag og lögðu fjölmargir leið sína í norræna skálann í tilefni af þjóðardegi Íslands.
Fleiri fréttir

11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna
Forseti veitti verðlaun í barnaflokki.
11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna

9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“
Forseti sækir fund ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs.
9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“

8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“
Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ í Genf.
8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“