Íslensku bókmenntaverðlaunin og Blóðdropinn
29. janúar 2025
Forseti afhendir bókmenntaverðlaun.







Forseti afhenti bókmenntaverðlaun við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fyrst afhenti hún Blóðdropann - islensku glæpasagnaverðlaunin og var það Stefán Máni sem þau hlaut fyrir bókina Dauðinn einn var vitni. Þá afhenti hún Íslensku bókmenntaverðlaunin í þremur flokkum.
• Í flokki barna- og ungmennabóka hlaut þau Rán Flygenring fyrir bókina Tjörnin.
• Í flokki fræðibóka og rita almenns efnis var það Guðjón Friðriksson sem hlaut verðlaunin fyrir bók sina Börn í Reykjavík.
• Í flokki skáldverka komu verðlaunin í hlut Kristínar Ómarsdóttur fyrir skáldsöguna Móðurást: Draumþing.
Sjá má lista yfir bækur sem tilnefndar voru til þessara verðlauna á vefsíðu Félags íslenskra bókaútgefenda.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“