Íþróttaþing ÍSÍ
16. maí 2025
Forseti ávarpar setningu Íþróttaþings ÍSÍ.



Forseti ávarpar Íþróttaþing ÍSÍ, Íþrótta-og Ólympíusambands Íslands, við setningu þess á Hótel Natura í Reykjavík. Íþróttaþing er æðsta vald um málefni ÍSÍ sem efnt er til annað hvert ár og er þetta í 77. sinn sem þingið er haldið.
Í ávarpi sínu ræddi forseti meðal annars mikilvægi íþrótta fyrir bæði andlega og líkamlega heilsu. Þá ítrekaði hún vægi íþrótta í forvarnarstarfi og til eflingar lýðheilsu. „Virði íþrótta nær langt umfram sigra. Íþróttir mennta fólk, aga það, búa til félagsleg tengsl, stuðla að góðri heilsu og endatakmarkið hlýtur því að vera gleði og hamingja,“ sagði í ávarpi forseta.
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, flutti einnig ávarp og greindi frá því að undirbúningur nýrrar þjóðarhallar væri langt á veg kominn.
Við þingsetninguna voru jafnframt veittar heiðursviðurkenningar til forystufólks úr íþróttahreyfingunni sem nánar má lesa um á vefsíðu ÍSÍ.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar