Klúbbur matreiðslumeistara
11. janúar 2025
Forsetahjón eru heiðursgestir á hátíðarkvöldverði.







Forsetahjón eru heiðursgestir á hátíðarkvöldverði Klúbbs matreiðslumeistara sem fram fer í Hörpu í Reykjavík þar sem forseti flytur ávarp. Hátíðarkvöldverðurinn er aðalfjáröflun klúbbsins þar sem fremstu matreiðslumenn landsins taka höndum saman og framreiða margrétta hátíðarmatseðil.
Allur ágóði kvöldsins rennur til klúbbsins með það að markmiði að efla íslenska matargerðarlist og styðja við klúbbfélaga, keppnina um kokk ársins og Íslenska kokkalandsliðið, sem býr sig nú undir næsta heimsmeistaramót í matreiðslu sem fram fer í Lúxemborg árið 2026.
Sú hefð hefur skapast á liðnum árum að forseti Íslands sitji hátíðarkvöldverðinn sem heiðursgestur og flytji þar ávarp.
Sjá pistil forseta: Hátíðarkvöld Klúbbs matreiðslumeistara
Fleiri fréttir

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“