Kveðja frá Namibíu
24. október 2025
Lucia Witbooi varaforseti Namibíu minnist Kvennafrídagsins.

Í tilefni af 50 ára afmæli Kvennafrídagsins sendi Lucia Witbooi varaforseti Namibíu myndband með kveðju til forseta Íslands og Íslendinga.
Kveðjan er svohljóðandi:
„Frú forseti, virðulegu kvenleiðtogar um allan heim.
Ég heiti Lucia Witbooi og er varaforseti Namibíu. Á þessu 50 ára afmæli Kvennafrídagsins á Íslandi vil ég fyrir hönd forseta Namibíu, frú Netumbo Nandi-Ndaitwah, og ríkisstjórnar hennar þakka fyrir það mikilvæga hlutverk sem hugrakkar íslensku konur léku í erfiðum aðstæðum.
Nú í dag, þegar við stöldrum við, að hálfri öld liðinni, til að minnast framtaks þessara hugrökku íslensku kvenna erum við þakklát fyrir kraft þeirra og áræðni. Nú þegar við stefnum áfram veginn, næstu 50 árin, skulum við sem kvenleiðtogar styðja hverjar aðra til að berjast gegn kynjamisrétti sem enn er fyrir hendi í löndum sumra okkar.
Ég óska konum um allan heim, sérstaklega þeim sem eru í leiðtogahlutverkum, alls hins besta við að marka leiðina fyrir þjóðir okkar fram á við. Látum orð okkar og aðgerðir veita ungum stúlkum innblástur til að blómstra.
Þakka ykkur fyrir.“
Einnig sendu kveðjur í tilefni Kvennafrídagsins fr. Mary Simon landstjóri Kanada, fr. Sandra Mason forseti Barbados og fr. Vjosa Osmani forseti Kósovó.
Fleiri fréttir

11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna
Forseti veitti verðlaun í barnaflokki.
11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna

9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“
Forseti sækir fund ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs.
9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“

8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“
Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ í Genf.
8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“