Kveðjustund í Þórshöfn
25. júní 2026
Ljósmyndir: Bjarni Árting Rubeksen
Lokadagur opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja.

Forseti og lögmannshjón rituðu nöfn sín í gestabók borgarstjórnar Þórshafnar.






Færeyski ljósmyndarinnar Bjarni Árting Rubeksen fylgdi forsetahjónum og lögmannshjónum um Færeyjar dagana 22.-24. júní. Úrval ljósmynda hans er aðgengilegt hér á vefnum.
Skoða myndir.
Lokadagur opinberrar heimsóknar forsetahjóna til Færeyja var í gær. Dagskráin hófst á morgunverðarboði í ráðhúsi Þórshafnar í boði borgarstjórnar. Hann sátu meðal annarra borgarstjórinn, Elsa Berg, og borgarfulltrúar Þórashafnar ásamt forsetahjónum, lögmannshjónum Færeyja og fylgdarliði.
Þaðan var haldið í Hugskotið, sem er nýsköpunar- og frumkvöðlamiðstöð Færeyja. Meðal þeirra sem kynntu forsetahjónum og lögmannshjónum starfið þar var Ólavur Ellefsen, stofnandi og framkvæmdastjóri tæknifyrirtækisins Usable, sem vinnur að gervigreindarlausnum og hefur komið að stefnumótun Færeyja á sviði gervigreindar.
Næst var haldið í Fróðskaparsetrið, háskóla Færeyja. Rektor skólans, Martin Tvede Zachariasen, og sviðforseti heilbrigðisvísindasviðs, Magni Mohr, tóku á móti gestunum og kynntu meðal annars kennslu- og rannsóknarverkefni sem snúa að heilbrigði og velsæld Færeyinga.
Dagskrá heimsóknarinnar lauk um hádegisbil á gagnkvæmnismóttöku forsetahjóna í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn. Meðal gesta voru lögmannshjónin, færeyskir ráðherrar og þingmenn, viðskiptasendinefndir landanna og aðrir sem tengst höfðu dagskrá heimsóknarinnar. Boðið var upp á íslenskar veitingar auk þess sem Ragnheiður Gröndal söngkona og Guðmundur Pétursson gítarleikari fluttu íslenska tónlist.
Forseti ávarpaði gesti í sal Norðurlandahússins. Hún þakkaði lögmannshjónunum og Færeyingum öllum fyrir hlýjar móttökur, einstaka gestrisni og dýrmætar samverustundir. Hún sagði enn fremur:
„Ég hef sannfærst um það á þessum síðustu dögum að Færeyingar og Íslendingar eiga æði margt sameiginlegt. Við búum á eyjum í Norður-Atlantshafi, við verjum ótrúlegum tíma í að spjalla um veðrið og teljum að okkar töfrandi blanda náttúru, sjávar, vinds, regns og sólar sé nokkuð sem aðrir jarðarbúar eiga bágt með að átta sig á – og kannski einnig við sjálf. Í löndum okkar beggja, eins og færeyska skáldkonan Vónbjørt Vang orðar svo fallega, er landslagið „opið / bíður / talar mál / sem við höfum enn ekki lært”. En kannski er það mikilvægasta sem sameinar okkur eitthvað enn djúpstæðara. Við gerum okkur grein fyrir að þrautseig samfélög verða ekki til af hendingu einni saman. Þau byggjast upp stig af stigi, frá einu sambandi til annars, einu samtali til annars, kynslóð fram af kynslóð.“
Fleiri fréttir

9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“
Forseti sækir fund ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs.
9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“

8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“
Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ í Genf.
8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“

6. júlí 2026
Forseti tekur sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind
Vinnuferð forseta til Genf í Sviss.
6. júlí 2026
Forseti tekur sæti í alþjóðlegri ráðgjafanefnd um gervigreind