Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna
18. mars 2025
Forseti tekur þátt í viðburði í New York.










Forseti tekur þátt í viðburði í tengslum við árlegan Kvennanefndarfund Sameinuðu þjóðanna (e. Commission on the Status of Women) sem nú stendur yfir í New York í Bandaríkjunum. Þetta er 69. fundur Kvennanefndarinnar og er höfuðáherslan á endurskoðun og mat á framkvæmd Pekingsáttmálans sem markaði kaflaskil í réttindabaráttu kvenna þegar hann var einróma samþykktur af aðildarríkjum SÞ árið 1995.
Af því tilefni bauð Amina J. Mohammed, varaframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, forseta Íslands að taka þátt í hliðarviðburði sem ber heitið Women Rise for All: Turning Hope into Action, sem fram fór í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Forseti og varaframkvæmdastjórinn opnuðu viðburðinn með samtali um þróun mála síðustu 30 ár, þ.e. síðan Pekingsáttmálinn var samþykktur. Þá var rætt um forystuhlutverk kvenna til að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (SDGs) fyrir árið 2030. Umræðunum stýrir Jessica Sibley, forstjóri bandaríska tímaritsins TIME.
Viðburðurinn var sýndur í beinu streymi og má sjá upptökuna hér.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“