Landssöfnun Kiwanis
24. september 2024
Forseti styður söfnun til styrktar Einstökum börnum.

Forseti ásamt fulltrúum Kiwanis á Íslandi, þeim Eyþóri K. Einarssyni, Sæmundi H. Sæmundssyni, Guðlaugi Kristjánssyni og Birni B. Kristinssyni. Ljósmynd: Skrifstofa forseta/Una Sighvatsdóttir



Forseti tekur á móti fulltrúum Kiwanis á Íslandi og gerist verndari landssöfnunar hreyfingarinnar til styrktar Einstökum börnum. Á þessu ári er því fagnað að 50 ár eru liðin frá fyrstu landssöfnun Kiwanis á Íslandi til styrktar geðverndarmálum. Þá er þess einnig minnst að 60 ár eru frá því að formlegt Kiwanisstarf hófst hér á landi með stofnun fyrsta Kiwanisklúbbsins þann 14. janúar 1964. Forsetar lýðveldisins hafa verið verndarar landssafnana Kiwanis síðan Vigdís Finnbogadóttir gegndi embættinu.
Að þessu sinni safnar Kiwanis fyrir Einstök börn, en það er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Kiwanis á Íslandi styður við velferð barna með margvíslegum hætti.
Fleiri fréttir

10. október 2026
Beint streymi frá Samtali
Forseti ávarpar þátttakendur um land allt frá Bessastöðum.
10. október 2026
Beint streymi frá Samtali

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt í viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag