Langtímasjónarmið í umhverfismálum
15. september 2025
Forseti í samtali á Umhverfisþingi.

Forseti var meðal þátttakenda á Umhverfisþingi 2025 sem fram fór í Hörpu. Í samtali við Ingibjörgu Þórðardóttur ræddi hún meðal annars um þau miklu áhrif sem stórfyrirtæki hefðu á umhverfið. Skammsýni og of þröng skilgreining á árangri væru meðal vandamála á þessu sviði. Forseti vakti hins vegar athygli á að endurskoðendur væru að leggja umhverfinu lið. Þeir hefðu kynnt á liðnum árum viðmið sem miða að því að meta áhrif fyrirtækja á umhverfi og samfélag og væru til þess fallin að hafa áhrif á stefnumótun og starfsemi fyrirtækja til lengri tíma. Einnig vakti hún athygli á að stjórnvöld væru, þrátt fögur fyrirheit, að niðurgreiða starfsemi sem hefði neikvæð umhverfisáhrif. Þá sagðist forseti vera þeirrar skoðunar að þeir aðilar sem sinntu umhverfisvernd væru of víða að vinna hver í sínu horni. Leiðin áfram hlyti að byggjast á víðtækari samvinnu, langtímasjónarmiðum og betri heildaryfirsýn.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar