Lausnahringurinn
31. mars 2025
Forseti tekur á móti grunnskólabörnum sem kynna Lausnahringinn.










Forseti tekur á móti börnum á aldrinum 8-13 ára á Bessastöðum sem kynna verkefnið Lausnahringurinn. Lausnahringurinn var þróaður af börnunum í samvinnu við Arnrúnu Maríu þegar hún var deildarstjóri þeirra í leikskóla. Markmiðið með verkefninu er að styðja börn og fullorðna til að tileinka sér lausnamiðaðar samskiptaleiðir og þannig skapa örugg tengsl. Arnrún María starfar sjálfstætt og hefur þróað forvarnarverkefnið Samtalið fræðsla ekki hræðsla.
Börnin áttu samtal með forseta og afhentu henni mynd af verkefninu. Forseti afhenti börnunum spilastokk sem tileinkaður er minningarsjóði Bryndísar Klöru og hvatti þau þannig til að spila meira og draga úr skjátíma. Auk þess hvatti hún þau til að sýna kærleika í verki og gerast riddarar kærleikans sem rímar vel við áherslur Lausnahringsins.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar