Líflegar samræður um sjálfbærni
18. ágúst 2025
Nemendur Jarðhitaskólans og Landgræðsluskólans í heimsókn.



Alþjóðlegur hópur nemenda í Jarðhitaskóla og Landgræðsluskóla GRÓ kom á fund forseta á Bessastöðum. Námið er starfrækt á vegum GRÓ, Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu sem starfar undir merkjum UNESCO. Fulltrúar nemenda, þau Esther Kimani frá Kenía og Maxwell Kudzala frá Malaví, sögðu frá reynslu sinni af náminu og gildi þess fyrir sín heimalönd. Einnig tóku Nína Björk Jónsdóttir, forstöðumaður GRÓ, Bjarni Richter, forstöðumaður Jarðhitaskóla GRÓ, og Sjöfn Vilhelmsdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskóla GRÓ, til máls. Meðal annars urðu líflegar umræður um mikilvægi þess að samþætta jafnréttissjónarmið markmiðum um sjálfbæra þróun.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar