Ljáðu mér vængi
11. febrúar 2025
Forseti heimsækir sýningu um Vigdísi Finnbogadóttur.




Forseti heimsækir sýninguna Ljáðu mér vængi ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, en sýningin er helguð ævi hennar og störfum. Sýningin er til húsa í gömlu Loftskeytastöðinni við Suðurgötu í Reykjavík og er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Vigdísarstofnunar.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, tók á móti forseta og fyrrverandi forseta og sagði nokkur orð við upphaf heimsóknarinnar. Að því loknu var farið yfir sýninguna í fylgd Maríu Theodóru Ólafsdóttur, forstöðumanns Loftskeytastöðvarinnar. Í sýningunni er ljósi varpað á áhrif Vigdísar Finnbogadóttur jafnt á Íslandi sem erlendis og á þau mál sem hún hefur beitt sér fyrir, bæði sem forseti Íslands og síðar sem velgjörðarsendiherra UNESCO.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar