Ljóðlist Íslands og Noregs
9. apríl 2025
Forseti sækir bókmenntaviðburð í opinberri heimsókn.






Forsetahjón og Hákon, krónprins Noregs, sækja bókmenntaviðburð sem helgaður er bókmenntaarfi Íslands og Noregs og ljóðlist beggja landa. Viðburðurinn var hluti af dagskrá ríkisheimsóknar forsetahjóna til Noregs og fór hann fram í Óslóarháskóla. Forseti fékk þar einnig tækifæri til að ræða við íslenska nemendur við skólann.
Á viðburðinum komu fram skáldin og rithöfundarnir Gerður Kristný, Knut Ødegård og Mette Karlsvik, sem eiga það sameiginlegt að hafa öll sótt innblástur fyrir ljóðlist sína til Eddukvæða. Halldór Guðmundsson rithöfundur og útgefandi var fundarstjóri. Á viðburðinum lásu skáldin upp úr ljóðum sínum bæði á íslensku og á norsku. Þá ræddu þau um sameiginlegan bókmenntaarf þjóðanna, þann innblástur sem Snorra-Edda er enn í nútímamenningu og skiptust á skoðunum um áskoranir við að þýða ljóðlist milli tungumála.
Viðburðinn sóttu fulltrúar bókaútgáfu og akademíu í Noregi auk nemenda Óslóarháskóla. Þar var einnig kynning á Norsku bókmenntahátíðinni sem fram fer í Lillehammer í júní en þar verða Íslendingasögurnar og íslenskar bókmenntir í lykilhlutverki.
Að viðburðinum stóð meðal annars Norska menningarráðið, fyrir tilstilli sjóðs sem stofnað var til árið 1994 í tilefni af 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins. Haraldur V. Noregskonungur sótti þá Ísland heim og tilkynnti ákvörðun norskra stjórnvalda um að leggja til árlegt framlag til norsk-íslensks menningarsamstarfs.
Myndasafn frá ríkisheimsókn til Noregs
Fleiri fréttir

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs

27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.
27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings

25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk
Forseti tekur á móti fulltrúum Barnaheilla.
25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk