Lokadagur heimsóknar til Kína
17. október 2025
Íslensk samtímatónlist á efnisskránni.


Á sjötta og síðasta degi opinberrar heimsóknar sinnar til Kína ræddi forseti m.a. við nemendur í alþjóðlegum viðskiptaháskóla í Shanghai, heimsótti Norræna setrið við Fudan-háskóla og sótti tónleika kammersveitar frá Hong Kong sem lék verk eftir íslensk samtímatónskáld.
Eftir að hafa flutt ávarp á alþjóðlegri viðskiptaráðstefnu, „ESG Global Leaders Conference", í Huangpu-hverfinu í Shanghai í gærmorgun heimsótti forseti kynningarbás íslenskra fyrirtækja á ráðstefnunni. Síðdegis skoðaði hún ásamt fylgdarliði hina rómuðu Yuyuan-garða sem farið var að rækta fyrir hátt í 500 árum. Þar má finna fágæta steina, gamlar byggingar og fallegan gróður en þar er einnig starfræktur markaður sem hefur mikið aðdráttarafl.
Fyrsti viðkomustaður forseta í morgun var China Europe International Business School (CEIBS) sem kínversk yfirvöld og Evrópusambandið stofnuðu árið 1994. Skólinn er með starfsemi í þremur kínverskum borgum og einnig í Sviss og Ghana. Forseti tók þar þátt í samræðum við Dominique Turpin, annan af tveimur rektorum skólans, og svaraði einnig spurningum nemenda. Forseti sat síðan hádegisverð í boði borgaryfirvalda í Shanghai og í kjölfarið fundaði hún með ræðismanni Íslands í Hong Kong, Henry Chan.
Deginum lauk á heimsókn forseta í Fudan-háskóla. Meðal viðkomustaða var Norræna setrið sem fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir. Að því standa, ásamt Fudan og tveimur öðrum kínverskum háskólum, um tuttugu norrænar háskólastofnanir, þar á meðal Háskóli Íslands. Dagskránni lauk með tónleikum kammersveitar Hong Kong-borgar í tónleikasal Fudan-háskóla. Þar voru flutt verk eftir Atla Örvarsson, Eydísi Evensen, Gabríel Ólafs, Herdísi Stefánsdóttur, Hildi Guðnadóttur, Jóhann Jóhannsson, Ólaf Arnalds og Viktor Örn Árnason.
Forseti flýgur frá Shanghai til London í kvöld og er væntanleg til Íslands á morgun.
Fleiri fréttir

21. apríl 2026
Gervigreind til góðs
Forseti efnir til samtals um samfélagsleg áhrif gervigreindar.
21. apríl 2026
Gervigreind til góðs

20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“
Forseti hittir nemendur Alþjóðlega jafnréttisskólans.
20. apríl 2026
„Öflug hreyfing er óstöðvandi“

16. apríl 2026
Velsæld á tímum gervigreindar
Forseti og Jesper Brodin ræða leiðtogahæfni og gervigreind á Velsældarþingi.
16. apríl 2026
Velsæld á tímum gervigreindar