Lyftingakonur
3. janúar 2025
Forseti tekur á móti afreksíþróttakonum.


Forseti tekur á móti afreksíþróttakonum í lyftingum. Þær Eygló Fanndal Sturludóttir lyftingakona og Sóley Margrét Jónsdóttir kraftlyftingakona unnu afrek á alþjóðlegum mótum á árinu sem er að líða og eru báðar tilnefndar sem Íþróttamaður ársins 2024.
Eygló Fanndal Sturludóttir varð Evrópumeistari í ólympískum lyftingum 23 ára og yngri í mínus 71 kílós flokki og sló bæði Norðurlandamet og Íslandsmet. Þá varð hún í fjórða sæti á HM fullorðinna í ólympískum lyftingum.
Sóley varð heimsmeistari í kraftlyftingum með búnaði í +84 kg flokki og vann svo silfurverðlaun í réttstöðulyftu. Samanlagt lyfti hún 710 kílóum sem er heimsmet 23 ára og yngri.
Forseti tók á móti þeim Eygló og Sóleyju ásamt aðstandendum þeirra og fulltrúum Lyftingasambands Íslands og Kraftlyftingasambands Íslands og bauð þeim til samtals í borðstofu Bessastaða. Rætt var um íþróttina, áskoranir og tækifæri í greinunum.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“