Lyklar að góðri líðan barna og unglinga
30. október 2025
Forseti tekur þátt í málþingi á Selfossi.

Forseti tók þátt í málþinginu „Lykill að líðan barna og unglinga" sem fram fór á sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Að þinginu stóð Epsilondeild Delta Kappa Gamma á Íslandi en DKG eru alþjóðleg samtök kvenna í fræðslustörfum. Meðal annarra sem tóku til máls voru Sigrún Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor við Háskólann á Akureyri og Ellert Geir Ingvason, varðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi. Fulltrúar ungmenna í umræðunum voru Hera Fönn Lárusdóttir, nemandi í 9. bekk í Grunnskólanum í Hveragerði, og Sigurður Ernir Eiðsson, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Markmið málþingsins var að skapa vettvang fyrir fjölbreytta umræðu um áskoranir sem ungt fólk glímir við, einkum á sviði andlegrar heilsu. Ellert Geir fjallaði meðal annars um verkefni samfélagslögreglunnar á Suðurlandi en Sigrún ræddi um úrræði sem unglingum, sem hafa orðið fyrir áföllum, stæðu til boða. Hera Fönn og Sigurður Ernir lögðu fram sínar hugmyndir um hvernig best væri að tryggja velferð yngri kynslóða. Þá ræddi séra Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur í Þorlákshöfn, við forseta um hreyfinguna Riddara kærleikans og verkefnið Símafrið. Í lokin voru pallborðsumræður og var þar meðal annars rætt um leiðir til að vernda börn og ungmenni fyrir áreiti samfélagsmiðla og snjalltækja.
Fleiri fréttir

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“

2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.
2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“