Með okkar augum
20. ágúst 2025
Forseti Íslands í samtali við Steinunni Ásu Þorvaldsdóttur á RÚV.

Sjónvarpsþættirnir Með okkar augum hafa verið reglulega á dagskrá RÚV í hálfan annan áratug og vakið mikla athygli. Markmið þáttanna er að auka sýnileika fólks með þroskahömlun og beina sjónum okkar allra að ýmsum hliðum íslensks samfélags. Þátturinn hefur meðal annars hlotið Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar og Edduverðlaunin. Fyrsti þáttur fimmtándu þáttaraðarinnar var frumsýndur 20. ágúst. Í honum spjallaði Steinunn Ása Þorvaldsdóttir við forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur. Þær ræddu meðal annars um eðli embættisins, gildi þess að brosa og þörfina á að mæta vaxandi ofbeldi, hatri og ótta í samfélaginu með kærleikann að leiðarljósi. Unnt er að sjá þáttinn í heild sinni á vef RÚV.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar