Menntadagur atvinnulífsins
11. febrúar 2025
Forseti afhendir verðlaun og situr fyrir svörum.





Forseti afhendir Menntaverðlaun atvinnulífsins og situr fyrir svörum í arinspjalli á Menntadegi atvinnulífsins. Þetta er í tólfta sinn sem Menntadagurinn er haldinn, að þessu sinni undir yfirskriftinni „Störf á tímamótum".
Dagskráin var opnuð með arinspjalli þar sem Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, ræddi við forseta um þróun menntunar í atvinnulífinu með hliðsjón af tækniframförum, breytingum á vinnumarkaði og samkeppnishæfni Íslands.
Þá tók við verðlaunaafhending þar sem forseti afhenti verðlaun í tveimur flokkum til fyrirtækja sem þykja skara fram úr í fræðslu- og menntamálum. Arion banki var verðlaunaður sem Menntafyrirtæki ársins og hugbúnaðarfyrirtækið Alda var útnefnt menntasprotinn 2025.
Í umfjöllun dómnefndar vegna Menntaverðlaunanna kemur fram að Arion banki rekur öflugt og metnaðarfullt fræðslukerfi sem nýtir fjölbreyttar og nýjar leiðir til að virkja kraftinn í stórum og fjölbreyttum hópi starfsfólks. Starfsfólk þróar námsefni sjálft á frumlegan hátt, fræðsluvísitala er innbyggð í fræðslustarfið og vel er haldið utan um starfsþróun innan fyrirtækisins, svo fátt eitt sé nefnt. Með verkefni eins og „Konur fjárfestum!“ tengir bankinn að auki fræðslustarfið við samfélagslega ábyrgð.
Um menntasprotann segir í umsögn dómnefndar að Alda sé leiðandi í nýsköpun í fræðslu og menntun og leggi sín lóð á vogarskálarnar til að efla fjölbreytileika og inngildingu með gagnadrifnum fræðslulausnum á vinnustöðum og samfélaginu í heild.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar
Forseti tekur þátt viðburði með Tristan Harris og Raskin-hjónum.
9. október 2026
Þversagnir gervigreindarinnar krufnar

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“