Merkur frumkvöðull í dýravernd
27. ágúst 2025
Afhjúpað upplýsingaskilti við leiði Ingunnar Einarsdóttur.


Dýraverndunarsamband Íslands (DÍS) minntist Ingunnar Einarsdóttur, frumkvöðuls í dýravernd hérlendis, með viðburði við leiði hennar í Hólavallagarði. Ingunn fæddist 27. september 1850, fyrir réttum 175 árum, og var í tilefni þess afhjúpað upplýsingaskilti sem DÍS lét gera í samstarfi við Kvennaár og Kirkjugarða Reykjavíkur. Forseti flutti ávarp við athöfnina og sagði Ingunni sameina margt af því sem hún sjálf vildi leggja áherslu á í embætti, þar með talið "frumkvæði og kraft kvenna, samkennd með mönnum, dýrum og náttúru, og baráttu fyrir betra samfélagi, ekki síst í þágu þeirra sem ekki hafa rödd eða aðstöðu til að bera hönd fyrir höfuð sér". Við athöfnina tók formaður DÍS, Linda Karen Gunnarsdóttir, einnig til máls og söngkonurnar Helga Margrét Clarke og Gunnur Arndís Halldórsdóttir fluttu tónlist.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar