Mín framtíð
14. mars 2025
Forsetahjón sækja námskynninguna Mín framtíð.








Forsetahjón sækja kynningarviðburðinn Mín framtíð 2025 sem fram fer í Laugardalshöll samhliða Íslandsmót iðn- og verkgreina. Nemendum 9. og 10. bekkjar er boðið á framhaldsskólakynninguna Mín framtíð og sækja hana allt að 10.000 grunnskólanemendur víðsvegar að af landinu til að skoða námsleiðir framhaldsskólanna, kynnast iðngreinum, spjalla við nemendur skólanna og jafnvel prófa handtökin sjálf.
Á sama tíma heldur Verkiðn Íslandsmót iðn- og verkgreina, þar sem keppendur reyna á hæfni sína í krefjandi verkefnum. Keppt hefur verið í 20 – 27 greinum hverju sinni og takast keppendur á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku.
Forsetahjón fengu leiðsögn um sýninguna í Laugardalshöll þar sem þau gengu milli bása og ræddu bæði við grunn- og framhaldsskólanemendur. Að því loknu var forsetahjónum boðið í margréttaðan hádegisverð sem matreiðslunemar elduðu og þjónanemar báru á borð í höllinni.
Viðburðurinn er haldinn árlega í samvinnu Verkiðn, Skills Iceland, við Mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina. Sérstök áhersla á Mín framtíð 2025 er á mikilvægi iðn- og verkgreina og svokallaðra Steam-greina; vísindi, tækni, verkfræði, listsköpun og stærðfræði.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar