Mottumars ýtt úr vör
26. febrúar 2026
Ljósmyndir: Mbl/Karitas.
Forsetahjón taka við sokkapörum frá Krabbameinsfélaginu.

Forsetahjón tóku á móti fulltrúum Krabbameinsfélags Íslands og hönnuðunum Stefáni Sveini Aðalheiðarsyni og Anton Kaldal Ágústssyni á Bessastöðum. Gestirnir færðu forsetahjónum litrík sökkapör sem Stefán hannaði í samstarfi við Anton og Lindu Loeskow fyrir Mottumars 2026.
Mottumars er árlegt fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum. Að þessu sinni er sjónum beint að mikilvægi stuðnings og samstöðu og eru einkennisorð Mottumars árið 2026: „Enginn einn.“ Er þeim ætlað að minna á að enginn á að þurfa að takast á við krabbamein einn síns liðs.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar