Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk
25. ágúst 2026
Ljósmyndir: Barnaheill/Sunna Ben.
Forseti tekur á móti fulltrúum Barnaheilla.

Forseti ásamt fulltrúum Barnaheilla, fv. Kolbrún Pálsdóttir verkefnastjóri, Tótla I Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri og Sólveig Ólafsdóttir kynningarstjóri.

Forseti tók á móti þremur fulltrúum félagsins Barnaheilla á Bessastöðum. Þær færðu henni spilastokk með teikningum Ránar Flygenring af frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrum forseta Íslands. Útgáfa á spilastokknum er hluti af fjáröflun til stuðnings verkefna Barnaheilla erlendis.
Barnaheill eru frjáls félagasamtök sem hafa það markmið að vinna að mannréttindum barna. Þau eru hluti af alþjóðasamtökunum Save the Children sem eiga sér ríflega 100 ára sögu. Frú Vigdís Finnbogadóttir hefur verið verndari Barnaheilla frá því að samtökin voru stofnuð hér á landi árið 1989.
Barnaheill hefur um árabil sinnt mikilvægum alþjóðlegum verkefnum sem styðja börn sem búa við stríð, ofbeldi, fátækt og takmarkað aðgengi að menntun. Mun ágóði af sölu spilastokksins vera nýttur til að kosta starf samtakanna í Síerra Leóne, Madagaskar, Tansaníu og Írak. Teikningar Ránar af frú Vigdísi birtust upphaflega í bókinni Vigdís. Bókin um fyrsta konuforsetann sem Rán sendi frá sér árið 2019.
Fleiri fréttir

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“

2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“
Forseti sækir afmælishátíðir þriggja framhaldsskóla.
2. október 2026
„Framtíðin þarf á fólki að halda sem kann að hlusta“