Norðurlandaráðsþing
29. október 2024
Forseti tekur á móti þáttakendum í þingi Norðurlandaráðs.

Forsætisráðherrar Norðurlandanna ásamt forseta á Bessastöðum. Ljósmynd: Skrifstofa forseta Íslands/Una Sighvatsdóttir





Forseti tekur á móti þátttakendum í þingi Norðurlandaráðs 2024 sem fram fer í Reykjavík. Forseti bauð til hádegisverðarmóttöku á Bessastöðum áður en þingið var sett síðdegis í Ráðhúsi Reyjavíkur.
Meðal gesta voru Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, og Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands. Þingforsetar Norðurlanda voru einnig meðal gesta sem og almennir þingmenn, samstarfsráðherrar Norðurlanda og utanríkisráðherrar Danmerkur, Færeyja, Grænlands og Svíþjóðar. Þá var Sviatlana Tsikhanouskaya, leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Belarús, sérstakur gestur en hún verður ræðumaður á þinginu. Fyrr um daginn átti forseti fund með Volodimír Selenskí, forseta Úkraínu, sem einnig er sérstakur gestur Norðurlandaráðsþings í ár.
Í ávarpi sínu bauð forseti gesti velkomna til Íslands og fagnaði norrænu samstarfi. Þá ræddi hún Norðurlönd sem fyrirmynd á sviði kynjafnréttis og endurnýjanlega orku og hvatti til frekara samstarfs á þeim sviðum. Að lokinni ræðu forseta flutti stúlknakór Kársnesskóla tvö lög í móttökusal Bessastaða. Íslenska kokkalandssliðið matdreiddi fyrir gesti.
Þing Norðurlandaráðs fer með æðsta ákvörðunarvaldið innan norræns þingsamstarfs. Þetta er einstakur vettvangur fyrir svæðisbundið samstarf þar sem saman koma bæði þingfulltrúar Norðurlandaráðs og ráðherrar úr ríkisstjórnum norrænu landanna.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“