Norrænt samstarf
10. september 2024
Forseti ræðir við tímarit Norræna félagsins í Osló.



Forseti ræðir við norræna félagið í Osló í Noregi í viðtali við tímarit félagsins, Norden. Fyrirsögn viðtalsins er „Norden kan vise verden hva som er mulig" og ræðir forseti þar meðal annars um hve Norðurlöndin hafi sterka rödd í sameiningu á heimsvísu og geti verið öðrum vegvísir. „Við verðum að nota sköpunargleðina til að finna lausnir í heimi sem þarf sannarlega á þeim að halda. Ég myndi gjarnan vilja sjá Norðurlöndin sem uppsprettu lausna, að þau sýni hvað er mögulegt að gera í heimi þar sem stundum virðist offramboð af hinu ómögulega," segir í viðtalinu.
Þá er rætt um fyrri störf forseta sem og markmið hennar í embætti, áherslu hennar á velferð ungs fólks, norræn tungumál og fleira. Viðtalið má lesa hér.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar