Norski viðskiptaháskólinn
8. apríl 2025
Forseti ræðir við nemendur og starfslið.












Forseti heimsækir norska viðskiptaháskólann, BI Norwegian Business School, í Ósló og ræðir þar við nemendur og starfslið. Heimsóknin var liður í dagskrá þriggja daga ríkisheimsóknar forseta Íslands til Noregs og fylgdi Hákon krónprins forsetahjónum í skólann.
Rektor viðskiptaháskólans, Karen Spens, tók á móti gestunum og sýndi þeim skólann. Á sal fór svo fram viðburður fyrir nemendur og starfslið þar sem forseti tók þátt í arinspjalli um ábyrga forystu á viðsjárverðum tímum. Spyrill var Kristine Dahl Steidel, forstjóri Microsoft Norway.
Viðburðurinn var opinn almenningi og var honum streymt á netinu; upptökuna má nálgast hér.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar