Ný kynslóð rannsakenda
20. janúar 2026
Arnaldur Halldórsson
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2026.

Forseti ásamt þeim sem hlutu viðurkenningu á Bessastöðum. Ljósmynd: Arnaldur Halldórsson.






Forseti afhenti Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands á Bessastöðum. Verðlaunin eru veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt voru af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2025. Verðlaunin í ár hlaut Alexandra K. Hafsteinsdóttir, nemandi í jarðfræði við Háskóla Íslands, fyrir verkefnið Kortlagning grunnvatns á Reykjanesskaga.
Auk þess fengu fimm önnur verkefni sérstaka viðurkenningu. Þau eru: (1) Efnisheimar. Byggingarefni á Íslandi í sögulegu, menningarlegu og vistfræðilegu samhengi. Verkefnið unnu Bjarki Þór Wíum Sveinsson og Gísli Hrafn Magnússon nemendur í arkitektúr í LHÍ. (2) Lífkol. Brú milli fiskeldis og landbúnaðar. Verkefnið var unnið af Ásdísi Öglu Sigurðardóttur nemanda í matvælafræði við HÍ. (3) Tengja. Nýting á bakvatni hitaveitu í almannaþágu. Verkefnið var unnið af Janek Beau, Max Greiner, Kötlu Taylor og Tuma Valdimarssyni, nemendum í hönnun í LHÍ. (4) Vöktun á útbreiðslu gufupúða á háhitasvæðum. Verkefnið vann Hugo Alejandro Arteaga Vivas nemandi í jarðeðlisfræði við HÍ. (5) Þrívíddarprentuð æfingalíkön fyrir sónar. Verkefnið var unnið af Altina Tinna Zogaj nemanda í læknisfræðilegri verkfræði við HÍ og Guðbjörgu Láru Magnúsdóttur nemanda í heilbrigðisverkfræði við HR.
Forseti afhenti öllum nemendunum sem unnu að tilnefndum verkefnum viðurkenningarskjöl og blóm en verðlaunahafinn, Alexandra, hlaut einnig sérstakan verðlaunagrip.
Lýsingar á verkefnunum sex eru aðgengilegar á vef Rannís. Þá er unnt að sjá fleiri myndir frá afhendingunni hér á vef embættisins.
Fleiri fréttir

9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag
Forseti býður alþjóðlegum hópi til samtals um frið, traust og þróun tækninnar.
9. október 2026
Leiðtogafundur í Höfða á sunnudag

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“