Nýr vefur opnaður
25. febrúar 2026
Hönnun í höndum stafrænu stofunnar Júní

Forseti ásamt teyminu hjá Júní, f.v. Fanney Vilhjálmsdóttir, Arndís Thorarensen, Jón Lorange og Guðmundur Bjarni Sigurðsson. Á myndina vantar Júlíu Runólfsdóttur.
Stafræna stofan Júní hannar nýjan upplýsingavef embættis forseta Íslands sem opnar í dag. Meira er lagt í myndræna miðlun efnis um embættið á þessum nýja vef en áður og er meðal annars boðið upp á sýndarheimsókn á Bessastaði.
Nýi vefurinn tekur við af vef sem hannaður var fyrir níu árum síðan, á fyrsta ári Guðna Th. Jóhannessonar í embætti forseta. Að undangenginni markaðskönnun var samið við stafrænu stofuna Júní um verkefnið. Í hönnunarteyminu hjá Júní voru Fanney Vilhjálmsdóttir verkefnisstjóri, Jón Lorange forritari og Júlía Runólfsdóttir hönnuður. Yfirhönnuður var Guðmundur Bjarni Sigurðsson en hann er eigandi Júní ásamt Arndísi Thorarensen og Andra Úlfarssyni.
Forsetaembættið þakkar Júní fyrir frábært starf. Embættið vill einnig þakka þeim mörgu sem lagt hafa verkefninu lið, þar á meðal Sigurjóni Ólafssyni hjá Fúnksjón-vefráðgjöf, Kristínu Svövu Tómasdóttur og Julie Summers.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar