Ólympíufarar kvaddir
14. ágúst 2024
Forsetahjón taka á móti keppendum á Paralympics 2024.

Íslensku keppendurnir á Paralympics í París ásamt forsetahjónum. Ljósmynd/Una Sighvatsdóttir









Forsetahjón taka á móti íslensku þátttakendunum á Ólympíumóti fatlaðra 2024, Paralympics í París, aðstandendum þeirra og fulltrúum frá Íþróttasambandi fatlaðra. Forsetahjón óskuðu íslenska hópnum góðrar ferðar og velfarnaðar á mótinu í lok ágúst.
Fimm keppendur hafa tryggt sér þátttökurétt á leikunum og munu keppa fyrir Íslands hönd. Það eru þau Már Gunnarsson, Róbert Ísak Jónsson, Sonja Sigurðardóttir og Thelma Björg Björnsdóttir, sem öll keppa í sundi, og Ingeborg Eide Garðarsdóttir sem keppir í kúluvarpi. Forsetahjón munu sækja Ólympíumótið sem hefst þann 28. ágúst í París.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar