Ómetanlegt framlag þriðja geirans
13. nóvember 2025
Forseti gestur á Fundi fólksins, ráðstefnu Almannaheilla.

Forseti og Hildur Tryggvadóttir Flóvenz, formaður Almannaheilla, á sviðinu í Hörpu. Ljósmynd: Ragnhildur Aðalsteinsdóttir.
Forseti var sérstakur gestur á Fundi fólksins, ráðstefnu Almannaheilla, sem fram fór í Hörpu. Ræddi hún þar við Hildi Tryggvadóttur Flóvenz, formann Almannaheilla, um mikilvægi þriðja geirans í íslensku samfélagi.
Almannaheill eru regnhlífarsamtök á fimmta tug félagasamtaka og sjálfseignarstofnana sem starfa á sviði velferðar, mannréttinda, menningar, lýðræðis, umhverfismála og samfélagsþróunar. Oft er vísað til þeirra sem þriðja geirans þar sem starfsvettvangur þeirra og viðfangsefni brúa bilið milli hins opinbera og einkafyrirtækja.
Samræða forseta við Hildi bar yfirskriftina „Ómissandi fyrir samfélagið“. Þær ræddu meðal annars um hvort og hvernig almannaheillafélög gætu unnið enn betur saman að einstökum málefnum. Forseti færði ráðstefnugestum og öllum öðrum sem sinna sjálfboðaliðastörfum í þágu almennings þakkir fyrir ómetanlegt framlag til velferðar í landinu.
Fleiri fréttir

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs

27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.
27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings

25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk
Forseti tekur á móti fulltrúum Barnaheilla.
25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk