Óperudagar
31. október 2024
Forseti tekur á móti aðstandendum tónlistarhátíðarinnar Óperudaga.

Forseti tekur á móti aðstandendum tónlistarhátíðarinnar Óperudaga. Hátíðin er vettvangur klassískra söngvara og þeirra samstarfsfólks sem vilja í sameiningu efla óperu-, söng-, og tónlistarleikhússenuna á Íslandi. Óperudagar er ein af Borgarhátíðum Reykjavíkurborgar frá 2023-2025 og undir merkjum hennar er staðið að fjölda viðburða bæði á hefðbundnum og óvenjulegum tónleikastöðum.
Fjöldi gesta frá Norðurlöndum sækir hátíðina, auk Íslendinga. Forseti bauð lykilþáttakendum til móttöku á Bessastöðum þar sem rætt var um gildi tónlistar og söngs til að stuðla að samhljómi í samfélaginu. Þá sungu gestirnir tvö lög fyrir forseta, "Vikivaka" og "Hvíta máva".
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar