Opið hús á Bessastöðum
6. febrúar 2025
Forseti tekur á móti gestum milli kl. 18-22 á Safnanótt.

Í tilefni Safnanætur á Vetrarhátíð verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi föstudagskvöldið 7. febrúar. Forseti tekur á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 18:00 og 22:00.
Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins sem eru síðari tíma viðbyggingar. Í húsinu má meðal annars sjá úrval myndlistar eftir íslenska listamenn og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins. Þá verða til sýnis dæmi um mannvistarleifar sem fundist hafa við fornleifarannsóknir og veita innsýn í búsetu á Bessastöðum allt frá landnámstíð. Að þessu sinni verður Bessastaðakirkja lokuð vegna framkvæmda og fornleifauppgraftar. Eins verður fornleifakjallarinn lokaður.
Á gafl Bessastaðakirkju verður varpað myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands af íslensku mannlífi í forsetatíð nokkurra fyrrverandi forseta. Fyrsti forsetabíllinn, Packard bifreið Sveins Björnssonar, mun standa í hlaði ef veður leyfir en bifreiðin er árgerð 1942.
Starfsmenn embættis forseta og aðstoðarmenn veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar