Opið verður á Menningarnótt á Bessastöðum
20. ágúst 2024
Forsetasetrið verður opið almenningi milli klukkan 14:00 - 17:00.

Í tilefni Menningarnætur verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi laugardaginn 24. ágúst. Forsetahjón taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 14:00 og 17:00.
Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins sem eru síðari tíma viðbyggingar. Í húsinu má meðal annars sjá úrval myndlistar eftir íslenska listamenn og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins. Þá verða til sýnis dæmi um mannvistarleifar sem fundist hafa við fornleifarannsóknir og veita innsýn í búsetu á Bessastöðum allt frá landnámstíð. Að þessu sinni verður Bessastaðakirkja lokuð vegna framkvæmda og fornleifauppgraftar. Eins verður fornleifakjallarinn lokaður.
Í hlaði Bessastaðastofu verður fyrsti forsetabíllinn, Packard bifreið Sveins Björnssonar, til sýnis en bifreiðin er árgerð 1942. Starfsmenn embættis forseta og aðstoðarmenn veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.
Fleiri fréttir

28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs
Forseti sendir Hákoni VIII samúðarkveðjur vegna andláts Haraldar V.
28. ágúst 2026
Samúðarkveðja til Noregs

27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings
Ruslan Stefanchuk, forseti Úkraínuþings, í opinberri heimsókn á Íslandi.
27. ágúst 2026
Forseti fundar með forseta Úkraínuþings

25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk
Forseti tekur á móti fulltrúum Barnaheilla.
25. ágúst 2026
Myndir Ránar af frú Vigdísi prýða nýjan spilastokk