Opinber heimsókn til Vestmannaeyja
8. janúar 2026
Forsetahjón fara í opinbera heimsókn 8.-9. janúar.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, og Björn Skúlason, eiginmaður forseta, fara í opinbera heimsókn til Vestmannaeyja dagana 8.-9. janúar. Þar tekur bæjarstjórn á móti forsetahjónum og kynnir þeim mannlífið, helstu stofnanir og atvinnulíf í Eyjum.
Vestmannaeyjar eru ein mikilvægasta verstöð landsins og nafntogaðar fyrir náttúrufegurð og blómlegt samfélag. Forsetahjón munu dvelja í Vestmannaeyjabæ á Heimaey. Dagskráin hefst síðdegis fimmtudaginn 8. janúar. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tekur á móti forsetahjónum á flugvellinum, ásamt Páli Magnússyni forseta bæjarstjórnar, Njáli Ragnarssyni formanni bæjarráðs og Drífu Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs bæjarins. Þaðan verður ekið í Sagnaheima þar sem verður opið hús frá kl. 16.30. Bæjarbúum gefst þar kostur á að hitta forsetahjónin og taka þátt í hátíðlegri dagskrá þar sem boðið verður upp á tónlistaratriði, auk þess sem forseti og bæjarstjóri flytja ávörp. Um kvöldið er forsetahjónum og fylgdarliði boðið til kvöldverðar í Eldheimum ásamt bæjarstjóra, bæjarfulltrúum, mökum þeirra og fleiri gestum.
Fyrir hádegi á öðrum degi heimsóknarinnar eru leikskólinn Kirkjugerði, Grunnskóli Vestmanneyja og Framhaldsskóli Vestmannaeyja heimsóttir. Einnig kynna forsetahjón sér starfsemina í vinnu- og hæfingarstöðinni Heimaey, Safnahúsinu og Bókasafni Vestmannaeyja. Í hádeginu sitja forsetahjón fund með bæjarstjórninni í Ráðhúsinu og hitta starfsfólk þar. Síðdegis fara forsetahjón m.a. í heimsóknir í Ísfélag Vestmannaeyja, Þekkingarsetur Vestmannaeyja og Laxey sem er að byggja upp landeldi í Eyjum. Þau hafa einnig viðkomu í Týsheimilinu á Hamarsvegi þar sem haldið verður árlegt Þrettándakaffi fyrir sjálfboðaliða Þrettándagleðinnar. Dagskránni lýkur á þátttöku forsetahjóna í Þrettándagleðinni á malarvelli ÍBV.
Fleiri fréttir

6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“
Forseti opnar sýningu um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki 1945.
6. október 2026
„Þetta má aldrei gerast aftur“

4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“
Fjöldi viðburða í tilefni af 40 ára afmæli leiðtogafundarins.
4. október 2026
„Tímabært að setja samtal, frið og framtíðina á dagskrá“

3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“
Forseti leggur tveimur landssöfnunum lið.
3. október 2026
„Við skulum taka höndum saman“