Orðuveiting í Japan
27. maí 2025
Forseti sæmir tvo japanska ríkisborgara riddarakrossi.

Forseti sæmir tvo japanska ríkisborgara riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu við athöfn í sendiherrabústað Íslands í Tókýó. Sérstakur heiðursgestur viðburðarins var prinsessan Tsuguko af Takamado sem er meðlimur japönsku keisarafjölskyldunnar.
Þau sem sæmd voru heiðursmerkinu eru Yoko Kamikawa, þingkona og fyrrverandi utanríkisráðherra Japans, og Atsushi Sunami, forseti hugveitunnar Sasakawa Peace Foundation. Bæði hljóta þau fálkaorðuna fyrir störf í þágu samstarfs og vináttu Íslands og Japans.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“