Orkumálastjóri Evrópusambandsins
18. október 2024
Forseti á fund með Kadri Simson.



Forseti á fund með Kadri Simson, orkumálastjóra Evrópusambandsins. Hún er hér á landi vegna ráðstefnunnar Hringborð norðurslóða sem fram fer í Hörpu í Reykjavík.
Rætt var um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, orkuöryggi og hvernig Evrópusambandið hefur brugðist við orkukreppu í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Þá var rætt um reynslu Íslendinga í nýtingu jarðvarma og grænnar orku og möguleika á útflutningi þeirrar þekkingar.
Loks var rætt um 30 ára afmæli EES-samningsins og ávinning hans fyrir íslenskst samfélag gegnum tíðina.
Fundinn sat einnig Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, og Peeter Kadarik, varamaður orkumálastjóra Evrópusambandsins.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar