Ræðismaður Íslands á Filippseyjum
2. október 2024
Forseti sæmir Elizabeth Sy fálkaorðu.

Forseti sæmir Elizabeth Sy, ræðismann Islands á Filippseyjum, riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Ljósmynd: Skrifstofa forseta Íslands/Una Sighvatsdóttir

Forseti sæmir Elizabeth Sy, ræðismann Íslands á Filippseyjum, riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir þjónustu hennar við hagsmuni Íslendinga og framlag til að styrkja og efla tengsl Íslands og Filippseyja. Kjörræðismenn gegna mikilvægu, ólaunuðu hlutverki í utanríkisþjónustu Íslands, sérstaklega í þeim löndum þar sem ekki er íslenskt sendiráð. Elizabeth Sy hefur verið ræðismaður Íslands á Filippseyjum í rúman áratug eða frá árinu 2013.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“