Rætt um heilsu hafsins
20. nóvember 2025
Forseti fundar með Karli 3. Bretakonungi.

Karl 3. Bretakonungur tekur á móti forseta í Buckingham-höll. Ljósmynd: Breska konungsembættið.
Forseti Íslands er í þriggja daga vinnuferð í Bretlandi sem hófst á miðvikudag og lýkur í dag, föstudag. Eftir hádegi í gær átti forseti fund með Karli 3. Bretakonungi. Þau drukku saman te í Buckingham-höll og ræddu meðal annars um alþjóðamál, jarðvarma og orkuskipti. Samtalið snerist einnig um heilsu hafsins og áhuga konungs á ábyrgu laxeldi og laxveiði. Fram kom að konungur leiðir gjarnan saman ólíka hagsmunahópa til að vinna að úrbótum í einstökum málaflokkum.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
16. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“