Réttardagur í Mörk
19. september 2024
Forsetahjón heimsækja íbúa hjúkrunarheimilis.

Forsetahjón snæða kjötsúpu með heimilismönnum á Dvalarheimilinu Mörk. Ljósmynd: Skrifstofa forseta/Una Sighvatsdóttir.

















Forsetahjón heimsækja íbúa á hjúkrunarheimilinu Mörk í Reykjavík í tilefni af réttardegi sem þar er haldinn árlega að hausti. Þá gerir heimilisfólk sér glaðan dag í anda fjárleitarmanna en víða um land er fé smalað til rétta um þessar mundir.
Theodóra Hauksdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, og Gísli Páll Pálsson, stjórnarformaður Grundarheimilanna, tóku á móti forsetahjónum og fylgdu þeim fyrst með leiðsögn um 2. hæð hjúkrunarheimilisins þar sem 31 býr. Forsetahjón ræddu við heimilisfólk og heimsóttu nokkur þeirra.
Að því loknu var forsetahjónum boðið að snæða íslenska kjötsúpu á borðsal með íbúum 60 ára og eldri. Forseti ávarpaði salinn og að loknum hádegisverði var svo efnt til hópsöngs við gítarspil þar sem sígild, íslensk dægurlög voru á efnisskránni.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar