Riddarar kærleikans
7. september 2024
Forseti efnir til umræðufundar.

Ljósmynd: Skrifstofa forseta Íslands/Una Sighvatsdóttir.







Forseti efnir til umræðufundar á Bessastöðum með ýmsum aðilum sem láta sig málefni ungs fólks varða. Rætt var um andlega líðan ungmenna í samfélagi nútímans og mögulegar leiðir til að ráðast að rót vandans og hafa áhrif til góðs í þeim málaflokki. Sett var fram sú tillaga að hvetja almenning til að gerast „riddarar kærleikans" og bregðast þannig við ákalli aðstandenda Bryndísar Klöru Birgisdóttur um að heiðra minningu hennar með því að gera kærleikann að eina vopninu í íslensku samfélagi.
Bryndís Klara lét lífið í kjölfar hnífaárásar á Menningarnótt í Reykjavík. Stofnaður hefur verið minningarsjóður í nafni hennar og er forseti verndari sjóðsins. Markmiðið er að styðja við verkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni.
Forseti hefur kallað eftir því að þjóðin sameinist í átaki um að ráðast saman að rótum vandans. „Hvert og eitt okkar hefur þar hlutverk. Ég hef átt fjölda funda og samtala undanfarnar vikur um nauðsynlegar úrbætur í kerfinu - og þær eru sem betur fer margar á borðinu! En kerfisbreytingar duga ekki til - við þurfum að vinna saman að því að gera kærleikann að eina vopninu í okkar samfélagi," sagði forseti í ákalli sem birt var á Facebook.
Fleiri fréttir

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar

19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“
Stiklur úr dagbók forseta.
19. október 2026
„Fátt er hollara en að finna tilgang og tilheyra góðri liðsheild“