Ríkisheimsókn til Danmerkur
11. september 2024
Forseti þiggur boð Friðriks X Danakonungs,

Forseti þiggur boð Friðriks X Danakonungs um ríkisheimsókn til Danmerkur dagana 8.-9. október. Hefð er fyrir því að fyrsta ríkisheimsókn nýs forseta í embætti sé til Danmerkur. Þetta er jafnframt fyrsta ríkisheimsóknin eftir krýningu Friðriks X og forseti Íslands því fyrsti þjóðhöfðinginn sem dönsku konungshjónin taka á móti sem gestgjafar. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja söguleg tengsl Íslands og Danmerkur og efla hið nána samband ríkjanna.
Í fylgd forsetahjóna verður viðskiptasendinefnd sem eiga mun fundi með fulltrúum dansks viðskiptalífs á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og grænna lausna. Nánar verður greint frá dagskrá heimsóknarinnar þegar nær dregur.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar