Ríkisheimsókn til Finnlands hefst á morgun
6. október 2025
Forsetahjón koma til Helsinki.

Á morgun hefst tveggja daga ríkisheimsókn forseta og eiginmanns hennar, Björns Skúlasonar, til Finnlands. Forseti Finnlands, Alexander Stubb, og eiginkona hans, Suzanne Innes-Stubb, bjóða til þessarar heimsóknar og er markmið hennar að styrkja hin góðu tengsl Íslands og Finnlands. Í fylgdarliði forseta er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, ásamt opinberri sendinefnd. Samhliða ríkisheimsókninni fer viðskiptasendinefnd, leidd af Íslandsstofu, til Finnlands með fulltrúum hátt í 30 íslenskra fyrirtækja á sviði orkumála, hátækni og leikjaiðnaðar. Forsetahjón og utanríkisráðherra lentu ásamt fylgdarliði í Helsinki um hádegisbil og sitja kvöldverð hjá íslenska sendiherranum, Harald Aspelund, í kvöld en opinber dagskrá heimsóknar hefst á morgun.
Finnsku forsetahjónin bjóða íslensku forsetahjónin formlega velkomin til Finnlands framan við forsetahöllina í Helsinki kl. 10.00, þriðjudaginn 7. október. Í kjölfarið eiga forsetarnir fund í forsetahöllinni en að honum loknum svara þau spurningum blaðamanna. Meðal annarra dagskrárliða þennan dag er hádegisverður í boði Daniel Sazonov, borgarstjóra Helsinki, og heimsókn í þinghúsið þar sem forseti Íslands fundar með þingforsetanum Jussi Halla-aho. Að því loknu heldur hún til fundar við forsætisráðherra Finnlands, Petteri Orpo, í embættisbústaðnum Kesäranta. Samhliða dagskrá forseta heimsækja Björn Skúlason og Suzanne Innes-Stubb veitingastaðinn Nolla, Ólympíuleikvanginn í Helsinki og höfuðstöðvar líftæknifyrirtækisins Solar Foods. Fyrri degi heimsóknarinnar lýkur á kvöldverði sem finnsku forsetahjónin bjóða til í forsetahöllinni.
Miðvikudaginn 8. október halda forseti Íslands og maki til Espoo. Þau heimsækja m.a. miðstöð Nokia-fyrirtækisins í borginni og JA Yrityskylä, starfsþróunarvettvang þar sem skólabörnum úr 6. og 9. bekk gefst kostur á að setja sig í spor ólíkra fagstétta. Forsetahjónin sitja síðan hádegisverð í boði Kai Mykkänen, borgarstjóra Espoo. Þá liggur leiðin í Aalto-háskóla en þar taka forsetar landanna tveggja þátt í samræðum við nemendur um hlutverk leiðtoga á tímum hnattrænna breytinga. Síðdegis verður farið í heimsókn í Arkitekta- og hönnunarsafnið í Helsinki þar sem brátt opnar sýning um Múmíndal finnsku skáldkonunnar Tove Jansson. Heimsókninni lýkur á miðvikudagskvöld með gagnkvæmnismóttöku sem íslensku forsetahjónin bjóða til á veitingastaðnum Katajanokan Kasino í Helsinki. Þar skemmtir söngkonan GDRN gestum.
Sjá nánar dagskrá viðskiptasendinefndar á vef Íslandsstofu.
Fleiri fréttir

25. febrúar 2026
Nýr vefur opnaður
Hönnun í höndum stafrænu stofunnar Júní
25. febrúar 2026
Nýr vefur opnaður

21. febrúar 2026
„Þýðendur eru brúarsmiðir“
Forseti afhendir Íslensku þýðingarverðlaunin
21. febrúar 2026
„Þýðendur eru brúarsmiðir“

20. febrúar 2026
Sigríður Björk og Jón Karl boðin velkomin
Ráðið í tvö störf hjá embætti forseta
20. febrúar 2026
Sigríður Björk og Jón Karl boðin velkomin