Ríkisheimsókn til Finnlands í október
23. september 2025
Forseti og maki sækja Finnland heim

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, fer ásamt eiginmanni sínum, Birni Skúlasyni, í ríkisheimsókn til Finnlands dagana 7. og 8. október. Forseti Finnlands, Alexander Stubb, og eiginkona hans, Suzanne Innes-Stubb, bjóða til þessarar heimsóknar og er markmið hennar að styrkja hin góðu tengsl Íslands og Finnlands. Í fylgdarliði forseta er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, ásamt opinberri sendinefnd. Samhliða ríkisheimsókninni fer viðskiptasendinefnd, leidd af Íslandsstofu, til Finnlands með fulltrúum 25 íslenskra fyrirtækja á sviði orkumála, hátækni og leikjaiðnaðar. Sjá nánar fréttatilkynningu.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar