Sænska þingið
6. maí 2025
Forseti heimsækir Riksdagen og á fund með forseta þingsins.




Forseti heimsækir sænska löggjafarþingið Riksdagen og á fund með forseta þingsins, Andreas Norlén. Fundinn sat einnig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra auk starfsmanna. Rætt var um norrænt samstarf, samskipti við bandalagsþjóðir og ákall eftir aukinni samstöðu í ljósi stöðu mála á alþjóðasviðinu. Þá var rætt um fjölda íslenskra læknanema í Svíþjóð og hvernig greiða megi leið þeirra til framhaldsnáms. Einnig var rætt um norrænan bókmenntaarfi og færði forseti Norlén að gjöf Hávamál í sænskri þýðingu, en svo vildi til að fundinn bar upp á afmælisdegi þingforsetans.
Heimsóknin í sænska þingið var liður í dagskrá þriggja daga ríkisheimsóknar forseta til Svíþjóðar.
Myndasafn frá ríkisheimsókn til Svíþjóðar.
Fleiri fréttir

16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð
Forseti tekur þátt í heimsþingi kvenleiðtoga og átaki á vegum BÍL.
16. nóvember 2026
Traust, samvinna og ábyrgð

15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“
Stiklur úr dagbók forseta.
15. nóvember 2026
„Móðurmálið mitt góða ... mjúka og ríka.“

15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“
Forseti sækir minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa.
15. nóvember 2026
„Vinur er sá sem til vamms segir“