„Saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð“
7. nóvember 2026
Ljósmyndir: Ólafur Jónsson.
Forsetahjón sækja 150 ára afmælishátíð Blönduóss.

Yngsta kynslóðin tók á móti forsetahjónum þegar þau komu til Blönduóss.




Forsetahjón heimsóttu Blönduós í tilefni af 150 ára afmæli byggðarinnar þar og tóku þátt í hátíðardagskrá í félagsheimilinu. Forseti flutti þar ávarp og síðari um daginn afhjúpaði hún minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur sem fæddist fyrir 180 árum að Haukagili í Vatnsdal. Minnisvarðinn er gjöf frá Kvenréttindafélagi Íslands.
Um þessar mundir eru liðin 150 ár frá því að verslun hófst á syðri bakka Blöndu sumarið 1876. Verslunin lagði grunninn að þróun Blönduóss sem eins helsta verslunar-, þjónustu- og stjórnsýslukjarna Húnvetninga. Afmælisdagskráin hófst í félagsheimilinu en þa tóku, auk forseta, Svavar Pálsson sveitarstjóri Húnabyggðar, Guðmundur Haukur Jakobsson forseti sveitarstjórnar og Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélags Íslands til máls. Kvenfélagskonur í Bólstaðarhlíðar- og Svínavatnshreppum reiddu fram veitingar og tónlistarnemar úr Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga skemmtu gestum.
Í hátíðarávarpi sínu sagði forseti meðal annars: „Saga Blönduóss er saga fólks sem kom auga á tækifæri þar sem aðrir sáu hindranir. Fólks sem reisti hús, kom á fót fyrirtækjum, lagði vegi, setti skóla á fót og byggði brýr. Og ekki síst er saga bæjarins saga fólks sem lagði sitt af mörkum, kynslóð fram af kynslóð, til þess að skapa hér gott og gjöfult samfélag.“
Síðar í ávarpi sínu sagði forseti: „Við þurfum ekki öll að vera eins til að skapa samfélag. Við megum hafa ólíkar skoðanir, rækta ólíkar hefðir og viðhalda góðlátlegum ríg sem eflir metnað okkar og sjálfsvirðingu. Það sem skiptir máli er að við kunnum að standa saman þegar á reynir; að við byggjum brýr, ekki bara yfir árnar okkar, heldur líka á milli ólíks fólks og kynslóða.“
Að lokinni dagskránni í félagsheimilinu afhjúpaði forseti minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur á svonefndri Þríhyrnu á Blönduósi, milli Árbrautar og Húnabrautar. Um Bríeti hafði forseti meðal annars sagt í ávarpi sínu:
„Hún átti frumkvæði að stofnun Kvenréttindafélags Íslands og var einn helsti leiðtogi íslenskrar kvenréttindabaráttu um langt árabil. Bríet lét ekki segja sér að ekki væri hægt að knýja á um breytingar. Hún lét ekki segja sér að svona hefðu hlutirnir alltaf verið og þess vegna ættu þeir að vera það áfram. Og hún beið ekki eftir því að einhver annar breytti heiminum fyrir hana. Hún hafði hugrekki til að hafa áhrif. Ég hef alla tíð trúað því að forysta sé ekki bundin við titla, stöður eða völd. Forysta hefst þegar manneskja sér eitthvað sem þarf að breytast og ákveður að láta til sín taka. Og það gerði Bríet.“
Í heimsókn sinni skoðuðu forsetahjón einnig Textílmiðstöð Íslands og gamla Kvennaskólann á Blönduósi og nutu samvista við Húnvetninga og aðra gesti á afmælishátíðinni.
Fleiri fréttir

6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“
Forseti afhendir heiðursviðurkenningu fagráðs gegn einelti.
6. nóvember 2026
„Það þarf hugrekki til að standa með öðrum“

4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“
Stiklur úr dagbók forsetahjóna.
4. nóvember 2026
„Ég held að tónlist hafi einstaka töfra“

30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands
Forseti tekur við trúnaðarbréfi hr. Mustafa Levent Bilgen.
30. október 2026
Nýr sendiherra Tyrklands