Samskipti Íslands og Kína í brennidepli
14. október 2025
Forseti fundar með Xi Jinping.


Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, átti fund með Xi Jinping, forseta Kína, í Höll alþýðunnar í Peking í morgun. Fundurinn er hluti af dagskrá opinberrar heimsóknar sem hófst á sunnudag og lýkur á föstudag. Á fundinum var m.a. rætt um stöðu alþjóðamála, græn orkuskipti, jafnréttismál og samskipti og samvinnu ríkjanna tveggja.
Forseti Íslands lagði í máli sínu áherslu á lykilatriði í utanríkisstefnu Íslands, þar á meðal stuðning þjóðarinnar við Úkraínu, mikilvægi þess að friður komist á í Gaza og að unnið sé að tveggja ríkja lausn sem tryggi sjálfstæði Palestínu. Hún ræddi einnig afdráttarlausan stuðning Íslands við varðveislu og eflingu mannréttinda.
Í tengslum við fundinn í morgun sendu ríkisstjórnir beggja landa frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem lögð er áhersla á enn frekara samstarf á sviði jarðvarma sem lið í að sporna við loftslagsbreytingum. Einnig var undirritaður nýr tvíhliða samningur sem auðveldar útflutning á fiskeldisafurðum frá Íslandi til Kína.
Fundurinn í Höll alþýðunnar var hálftíma langur. Þorbjörg Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sat einnig fundinn af hálfu Íslands, ásamt Þóri Ibsen sendiherra og fjórum íslenskum embættismönnum. Athygli vakti að íslenska sendinefndin væri, að Þóri frátöldum, eingöngu skipuð konum.
Fleiri fréttir

11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna
Forseti veitti verðlaun í barnaflokki.
11. júlí 2026
Forsetahjónin taka þátt í Landsmóti hestamanna

9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“
Forseti sækir fund ráðgjafanefndar um gervigreind til góðs.
9. júlí 2026
„Ekkert eitt land getur stjórnað gervigreindinni upp á eigin spýtur“

8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“
Forseti ávarpar ráðstefnu á vegum SÞ í Genf.
8. júlí 2026
„Hvers konar samfélag – og mannkyn – viljum við skapa?“