Samtal um jafnréttis- og loftslagsmál
20. nóvember 2025
Forseti ásamt Juliu Gillard í King's College London.

Frá samtali forseta og Juliu Gillard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu. Ljósmynd: KCL
Forseti Íslands er í þriggja daga vinnuferð í Bretlandi sem hófst á miðvikudag og lýkur á föstudag. Á dagskrá forseta fyrir hádegi í dag var heimsókn í King's College London. Prófessor Stephen Bach, deildarforseti viðskiptadeildar skólans, tók á móti forseta og kynnti hana fyrir samstarfsfólki sínu, velunnurum skólans og gestum. Í hádeginu tók forseti síðan þátt í opinberum viðburði í háskólanum sem hófst á ávörpum Stephens Francis Smith, æðsta sendifulltrúa Ástralíu í Bretlandi, og Sturlu Sigurjónssonar, sendiherra Íslands í Bretlandi. Í kjölfarið ræddi forseti við Juliu Gillard, fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu, um leiðtogahæfni, jafnréttismál og loftslagslausnir. Þær svöruðu síðan spurningum nemenda og gesta.
Fleiri fréttir

28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“
Stiklur úr dagbók forseta.
28. október 2026
„Frelsi og mannleg reisn eru ekki forréttindi fárra“

22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?
Forseti tekur þátt í samtölum um samfélagsmiðla og sjálfbærni.
22. október 2026
Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm?

21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar
Forseti tekur við trúnaðarbréfum frá sendiherrum Lesótó og San Marínó.
21. október 2026
Tveir nýir sendiherrar